Hver er þessi ýlandi dræsa??
03.03.2008 20:18:29 / guddajo

Kona í hreiðurgerð!!

Nú er kellan alveg að ganga af göflunum hérna heima:) Ég held ég sé búin að taka alla skápa á heimilinu í gegn og allann þvott. Ég er viss um að þegar ég hef ekki fleirri verkefni heima fyrir þá fer ég að baka eða banka hjá grönnunum og spyr hvort ég megi þrífa:) Ég er sjálf með spá um hvenær hún lætur sjá sig.....ég fékk smá vitrun í draumi...annað hvort var mig að dreyma fyrir fæðingunni eða einhverjum náttúruhamförum...það kemur í ljós;)

Fór út að borða með fullt af fallegum konum á föstudaginn....hlaupársbarnið Nína átti afmæli og fórum við af því tilefni á DOMO, alveg hrikalega gott, takk fyrir mig Elsa mín. Eftir matinn var síðan partý hjá Nínu en kellingin var orðin svo þreytt kl 23 að við fórum bara heim að lúlla og létum partýdýrin um djammið......

Nú er Idolið byrjað og þá verð ég að hætta.......

Sí ja babes:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 09:29:02 / guddajo

Hellúúú

Jæja..kellan hætt að vinna og farin að hanga heima með bumbunni sinni, nú tekur við Daytime TV og tærnar uppí loftið. Ígær var konudagurinn og ég verð bara að segja frá hvað ég á mikin eðalmann:) Biggi fór að kaupa 7 rósir, gaf mér eina, mömmu, Eddu Björgu, mömmu sinni, frænku sinni, systur sinni og ömmu sinni........ein á mann.

Deila þessu með ykkur:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 20:44:09 / guddajo

Hæææææææææ alle zusammen in da house!

Jæja, ólétta konan bloggar og getur ekki talað um neitt nema óléttudót:) just bare with me!
Biggi kom heim og ég var rosa rosa glöð að fá hann, við erum búin að kaupa næstum allt og gera allt tilbúið.  

Snjórinn er loksins farin!!! undir öllum snjónum var hrúga af hundaskít.....:^) við náðum ekki að tína hann upp því það snjóaði bara yfir hann jafnóðum. Biggi fór í það moka skít á afmælisdeginum sínum....hehehe.....ég gerði bara eitthvað annað á meðan. Voffalingurinn er fluttur í sveit, við komumst í samband við rosalega yndælt fólk frá Akureyri og þau ættleiddu hann. Nú býr hann á sveitabæ í Eyjafirði með 2 öðrum hundum og skemmtir sér víst alveg rooosalega vel í víðáttunni. Við söknum hans hrikalega en ég efast ekki um að þetta sé miklu betra líf fyrir hann greyið, við vorum ekki að ná að sinna honum nógu mikið.

Ég á bara eftir að vinna út þessa viku....svo bara komin í frí (eins og Biggi kallar það).

Sííí júúú babes!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 10:48:05 / guddajo

Vill einhver koma og moka mig út!!

Jamm ég er föst heima í snjónum!! Vaknaði í morgun og það var búið snjóa fyrir allan peninginn. Ég ákvað að vera ekkert að flýta mér út að moka;) er ekkert voða spennt að festa mig í snjó komin 36 vikur......myndi örugglega missa vatnið bara í Ártúnsbrekkunni. Nú er byrjað að snjóa aftur og engin komin að skafa götuna mína...sveitin á það til að gleymast doldið. Þannig að ég vinn bara heima í dag.....vill einhver koma með mat handa mér??:)

Biggi er á Flórída að vinna, verður í heila viku:( mér finnst það ekki gaman. Ég er komin með svona skemmtilegan óléttukvilla núna og það er að væla yfir öllu mögulegu, ég má ekki heyra eitthvað fallegt lag þá bara koma the Waterworks!!

Spes!!  


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 17:02:34 / guddajo

Haldiði að sé nú dugnaðurinn!

Veit ekki hvað ég er búin að svo margar vélar af barnadóti:) þetta er endalaust og svo er úað og æað yfir hverri flík. Mamma fann einn kjól af mér síðan ég var bara 1 árs, hrikalega sætur. Það verður skylda að klæða snúlluna í hann og smella einni mynd.

Ég ákvað að taka mér smá frí og er búin að vera það síðan á fimmtudaginn....rosa næs og fer aftur að vinna á morgun. Er reyndar búin að eyða mestum tímanum við strauborðið og inni í þvottahúsi.

Fór í mæðraskoðun á fimmtudaginn, allt lítur vel út, ég á reyndar að minnka við mig vinnu og er nú bara að vinna 50%...ætla nú ekki að fara nánar út í það:) Ætla að fara að vera dugleg aftur í sundinu og að fara út að labba.

NÓG KOMIÐ AF BABYTALK!!

Þangað til næst......:lol:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 12:31:41 / guddajo

Æi ætli maður prufi ekki:)

Ætla að prufa að opna svona blogg til að athuga hvort ég verði duglegri að blogga:) Allt gott að frétta af okkur skötuhjúum í Grafarholtinu, nú eru bara rúmar 5 vikur í frumburðin okkar. Litla prinsessan á að koma 11. mars ef hún lætur ekki bíða eftir sér.

Ég er alveg að missa mig í barnadótinu, hangi á netinu að skoða eitthvað sem okkur gæti vantað.  Held nú samt að okkur eigi ekki eftir að vanta nokkurn skapaðan hlut....allir duglegir að bera í okkur hitt og þetta. Litla snúllan verður með nýtt dress fyrir hvern dag:)


» 5 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 6909
Klukkan
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti